Ég hef lítið komið við hér á blogginnu.....Á fjarlægri slóð...... en það veldur mér sára litlum pirringi, þ.s ég er jú í fjarlægð frá þeim sem ég þekki, handan sólseturs eða sólaruppkomu, þar sem ég er alltaf 7 tíimum á undan að sjá fegurð, bæði náttúrunnar og, jú og mannlífsinns, sem er í engu frábrugðið og við þekkjum á kunnuglegri slóð, í norðri. Kann að vera að sonur sæll vilji heyra æsifréttir um stríð eða villidýraveiðar, sem mér hugnast hvorugt, eða jafnvel dans við viltar meyjar í blóðrauðu sólarlagi, hafi það verið raunin, þá veit hann minnst um það.
Síðustu daga hef ég átt við s.k ferðamannaveiki, sem lýsir sér í meltingartruflunum, kannski bara tala Íslensku eins og gerum gjarnan; haft skitu og magaverki á háu stigi og ekki haldið neinu niðri......ýmist farið upp eða á miklu farti niður, í vatnselgum. Svona er þetta bara og ég var undir það búinn, af fyrri reynslu frá Indlands-og afríku ferðum mínum hér í denn. Mér hefur ekkert skort og vel séð um mig og stjanað við hvurn minn fingur. Jæja......kannski talaði ég af mér þarna, eitthvað fyrir son minn kæra að lyfta brúnum. Hvað um það, dvölin hér í Udon Thani hefur verið fram að þessu hin besta........og túlki hver fyrir sig hvað það þýðir, en frá mínu sjónarhorni er það vissulega að kynnast og upplifa, svo einfalt...og jafnvel.......rómantískt, eins og mannlífið jafn er, hvernig svo sem á er litið. Ég bíð þess að safna kröftum, þar sem ég var nokkuð grátt leikinn af ólíkri bakteríu flóru þess matar sem er í boði í þessum heimshluta og ég tel mig geta fullyrt að fáir, eða engir sleppi við kynni við svona magaókyrrð, hluti af leiknum, eða þannig. Hitin er að hlaupa þetta á milli 31 og uppí 38, logn alla daga og kvöld. Umhverið breytir um sýn, hvort sem er um að ræða dag eða nótt og að næturlagi vakna upp kynlegir kvistir, af öllum gerðum og stærðum. Það er einkar forvitnilegt að ganga þá slóða sem maður gjarnan þræðir að degi og ganga þá að næturlagi, maður er í öðrum heimi, með aðra og ólíka samferða.......verur sér við hlið. Stundum lítur maður að baki sér, þar sem maður taldi sig heyra skrjáf í laufi og lítur í þá átt sem maður taldi að upptök hljóðsins væri, en sér þá skugga skjótast eldsnöggt og veit varla hverss kyns var, eða maður heyrir jú skrjáfrið en finnur eitthvað strjúkast við sig og lítur síðan fram á veginn og sér þá könguló rölta í rólegheitum í sífelt minnkandi ljósglætu frá ljósastaur. Það fer um mann einhver óútskýranlegur hrollur, sem læðist niður um axlir og bak. Enn, áfram er þrammað þar til næsta ljósastaur er náð, þá sér maður glytta í augu, er stara á móti, hljóð, líkt urgi, síðan hvellt og langdragið......n.k vein, sem smásaman deyr út, eins og bjarminn frá augunum, þegar eigandi þeirra, hvað sem það nú var, fykrar sig upp tré, í dofnandi ljósunum. Sérkennileg en spennandi upplifun, með tré og villtan gróður allt um kring....og beygja framundan, hvað skyldi leynast handan hennar......?
Hin þögli morðingi, sem reynist hættulegri enn nokkur eitruð slanga eða könguló, fylgir mér nánast hvert fótmál, kemur að ofan og frá hlið og hvernig sem reynt er að forðast þennan óvætt, nær hann ávalt fram sínu markmiði, þó sér í lagi á meðan ég sef. Þessi skeppna, sem bæði hefur vakið andstyggð og hatur hjá fólki, vísindaamenn hafa reynt í gegnum áratuginna að hamla útbreyðslu þess, en með litlum árangri. Hann ber ábyrgð á dauða fjölda fólks víða um heim og starfsaðferðir hans eru kunnar, enn erfitt að hemja tæknilega ráðkænsku þessa magnaða óvinar. Óvinur þessi er valdur að dauða milljóna manna víða um heim og oftast nær kemst hann óséður að fórnarlambi sínu sem í flestum tilvikum sefur og verður þess ekki áskynja að hann hefur orðið fyrir árás, fyrr en morgnar. Óvinur þessi breiðir út banvænar pestir og skilur eftir sig sorg og dauða. Ekki flaggar hann stærð eða vöðvamætti, svo örsmár er þessi ókind og hef ég áður komist í kynni við óvætti þessa og hef reynt ýmsa mótleiki, mér til varnar, sem stundum hafa virkað, en stundum ekki. Óvættur þessi birtist gjarnan í fromi flugu sem við þekkjum sem Moskító-flugu og eru til fjölda mörg afbrigði hennar og mis hvekkjandi.......og banvæn. Ég hef ekki farið varhluta af kynnum mímun við þær að þessu sinni, þó í þetta sinnið hafi þær verið býsna lágværar, áður enn þær gera loka atlögunna. Moskítóið hefur verið pirrandi síðustu 30 mill. árin, þó aðferðir þeirra séu þær sömu og verið hefur. Búnaður þeirra er afar merkilegur, svo litið sé á þær frá vísindalegu sjónarhorni. Þær ku finna lykt og útstreymi frá væntanlegri "bráð" úr 30 m. fjarlægð og finnur útstreymi húðarinar um hverrs lags blóð-góðgæti bíður......eða þannig. Þá sest flugan, sem er alltaf kvennflugan, sem hefur sérhannaðan "bor" sem hún notar til að bora með í gegnum húðina, þar til hún keemst að æð og fyllir síðan á tankinn hjá sér. Á meðan hún sýgur blóðið, þá sptýtir hún efni í blóðið sem kemur í veg fyrir að blóðið kleggist, en í þeim vökva getur fylgt bakteríur og hætulegar veirur, s.s gula, malaría, japönsk heilabólga og fleiri óskemmtilegar óværur. Að aflokinni máltíð hefur hún sig upp, full belgd af blóði og gegnir furðu næst að hún haldi flugi........og stefnu. Nú kynni fólk að spyrja afhverju kvennflugan sýgur aðeins blóð. Svarið við því er einfalt, vegna þess að hún er kvennfluga, án þess að verið sé að deila að kvennkynns lífverur, en ástæða þess er að kvennflugan þarf á ákveðnum próteinum að halda, til þess að frjóðgvuð egg geti byrjað nýtt líf, áður enn hún verpir þeim. Skemmtileg rómantísk saga, eða hitt þó heldur!!
Jæja, best halda uppi vörnum og bera á sig DEET flugnafælu áður enn gengið er til náða......ef maður sefur þá eitthvað í nótt...........bless í bili.
Ég er loksins búin að finna bloggið þitt gamli minn. Þú þyrftir að share færslunum á facebook, þetta er skemmtileg lesning.
ReplyDeleteÞótt ég hafi haft mjög gaman af fyrri bloggum þá verð ég að segja að þetta er það besta hingað til. Húmorin þinn skýn svoldið mikið í gegn í fyrri hlutanum.
Þú er ekki sá eini sem hefur fengið "vægar meltingartruflanir" í nýjum heimshlutum, þær eru víst hluti af þessu öllu, maður verður bara að muna að láta þær ekki hertaka allt of halda ´fram að njóta lífsins.....svo lengi sem klósettið er ekki mjööög langt undan =)
Þú getur samt ekki ímyndað þér hvað ég öfunda þig. Tæland er eitt af topp 5 löndum sem mig langar að heimsækja! Má ég ekki bara kíkja í heimsókn á morgun?
hahahahaha gaman ad lesa skemtilegt og spennandi blogg :D
ReplyDeletetu ert agætur gamli minn :D
hafdu tad sem allra best og haltu afram ad lata stjana vid tig ;)